Reynsla okkar hjá Alta er að markvisst umhverfisstarf sé vannýtt tækifæri í rekstri. Til eru fjölmargar leiðir til að tryggja ávinning fyrir reksturinn, samfélagið og umhverfið.
Við hjá Alta getum aðstoðað þig við að
- greina stöðu og möguleg tækifæri,
- koma á skipulegu umhverfisstarfi sem virkar,
- uppfylla kröfur mismunandi umhverfismerkja svo sem Svansins og Evrópublómsins,
- innleiða umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001,
- innleiða vistvæn innkaup,
- innleiða umhverfisáherslur í byggingum og skipulagi,
- kynna umhverfismál á árangursríkan hátt,
- fræða og virkja starfsmenn um umhverfismál,
- þróa umhverfishæfa vöru og þjónustu,
- gera áreiðanleikakönnun (Due Diligence) með tilliti til umhverfis-, öryggis- og starfsmannamála
- setja upp grænt bókhald.
Leiðarljós okkar í vinnu að umhverfismálum er að virkja hagsmunaaðila með í verkefnum eftir atvikum, hvort sem um er að ræða starfsfólk, íbúa, viðskiptavini eða aðra. Þannig fæst skapandi nálgun, víðari skilningur á verkefnin, mat á þörf, ábendingar um tækifæri og betri lausnir.
Verkefni okkar á þessu sviði eru afar fjölbreytt
- Innleiðing á umhverfisstarfi og á kröfum Svansins, sjá hér um umhverfismerkið. Við höfum einnig aðstoðað fyrirtæki við að uppfylla kröfur Evrópublómsins og fleira tengt umhverfismerkingum. Sjá nánar um Sólarræstingu sem segir að umhverfismál séu jafnframt gæðamál, Umslag og Hreint. Grand hótel er fyrsta hótelið sem fær Svansvottun sjá hér.
- Stefnumótun um vistvæn innkaup ríkisins og vinna með stýrihópi um vistvæn innkaup. Auk þessa höfum við m.a. unnið að vef verkefnisins og þýðingu og staðfærslu á myndbandi um vistvæn innkaup.
- Aðstoð við stefnumótun, innleiðingu og önnur tengd verkefni um vistvæn innkaup. Sjá meðal annars um vistvæn innkaup í Fljótsdalshéraði og af árangri vistvænna útboða hjá Reykjavíkurborg.
- Stefnumótun og úttektir á umhverfisstarfi hjá fyrirtækjum, m.a. vinna við grænt bókhald.
- Aðstoð við gerð innihaldsmerkinga fyrir fiskafurðir fyrir G.RUN í Grundarfirði . Ófum einnig vefinn fyrir þau, sjá hér.
- Úttekt á fýsileika umhverfis- og gæðamerkis fyrir Ferðamálastofu sem í dag hefur leitt af sér VAKA, gæða- og umhverfismerki.
- Ótal vinnufundir fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og ráðuneyti við uppbyggingu og innleiðingu umhverfisstarfs. Sjá hér dæmi frá Fljótsdalhéraði og af umhverfisþingi umhverfisráðuneytisins.
- Ráðgjöf um framsetningu eða kynningu á umhverfismálum.
- Áreiðanleikakannanir (e. Environmental Due Diligence) með tilliti til umhverfismála og lagakrafna.
- Þróun á umhverfishæfri vöru og þjónustu.
- Fjölbreytt fræðsla og námskeið svo sem um umhverfismál í daglegu lífi, hvað þýðir umhverfisvænt, seljum við umhverfisvænar vörur, umhverfismál og innkaup og um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar.
- Innleiðing á kröfum um vistvænar byggingar og skipulag. Sjá hér áherslur á umhverfisgæði í húsnæði Alta.
- Leiðsögn um högun umhverfisvænna fjarfunda.